Aðalskipulag Reykjavíkur AR2040, skilgreinir Mjódd sem eitt skipulagsvæði en reiturinn kallast M12. Við sem sækjum þjónustu í Mjódd tölum um Suður-Mjódd, Mjódd og svo Norður-Mjódd. Í Suður-Mjódd er íþróttasvæði ÍR, íbúðir eldra fólks við Árskóga og nýja svæði Garðheima. Mjódd er það svæði sem nær frá Breiðholtsbraut að stoppistöð Strætó með einu yfirbyggð göngugötu landsins og að lokum er Norður-Mjódd, svæðið frá stoppistöð strætó að Aktu taktu sem áður þekktist sem Staldrið.
Reykjavíkurborg leiðir stafræna þjónustu við eldra fólk ekki bara á landsvísu heldur líka á Norðurlöndunum og hefur fjárfest tæplega 356 milljónum króna síðustu sex árin ásamt að hafa fengið um 141 milljón króna mótframlag frá ríkinu - samtals fjárfesting upp á hálfan milljarð króna sem varið hefur verið í stafræna þjónustu umbreytingu hjá velferðarsviði. Utan landsteinanna hefur verið tekið eftir hvað Reykjavíkurborg er þjónustumiðuð en Velferðamiðstöð Norðurlandanna (s. Nordens Välfärdscenter) sem heldur utan um nýsköpun í þjónustu er tengist velferð og kallast í daglegu máli velferðartækni, tilgreinir Reykjavíkurborg í sinni samantekt Norðurlandaþjóðanna sem leiðandi afl á Norðurlöndunum en ekki Ísland.
Breytt samfélagsgerð, ólíkar kynslóðir og tækniþróun kalla á nýja hugsun í þjónustu við okkur sem erum að eldast - hresst eldra fólk, eldra fólk þar sem færni hefur minnkað og þau sem glíma við heilsubrest og þurfa á stuðningi að halda við daglegt líf. Samkvæmt mannfjöldaspám Hagstofu Íslands stendur þjóðin frammi fyrir sömu áskorunum og nágrannaþjóðir okkar. Árið 2020 var hlutfall fólks yfir 65 ára 14%, árið 2038 er áætlað að það hlutfall verði yfir 20% mannfjöldans og árið 2064 yfir 25%. Þannig mun mín kynslóð, næsta kynslóðin á undan mér og þær sem á eftir koma, lifa lengur, vera fjölmennari og gera meiri kröfur á samfélagið hvað varðar þjónustu, lífsgæði og heilbrigði.
Tryggt þak yfir höfuðið er undirstaða daglegs lífs, það veitir öryggi og skjól sem öllum er lífsnauðsynlegt. Núna í vetrarbyrjun voru 2.853 íbúðir í byggingu í Reykjavík og fjölgar um rúmlega 12% milli ára, 2.884 íbúðir eru í samþykktar í deiliskipulagi og 2565 á byggingarhæfum lóðum.
Síðustu sjö árin hefur mikil og metnaðarfull umbótavinna verið unnin af hálfu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem og fagaðila innan skólasamfélagsins í borginni með dyggum pólitískum stuðningi meirihlutans í Reykjavík. Þessi mikla og góða vinna hefur hvorki farið hátt né verið slegið upp í fyrirsögnum fjölmiðla en um er að ræða rúmlega 4 milljarða króna fjárfestingu í bættu starfsumhverfi, bættu faglegu skipulagi innan leikskólans og bættri starfsaðstöðu. Það er fyrir utan viðhald og endurbætur mannvirkja, nýjar Ævintýraborgir og launahækkanir sem komið hafa fram í kjarasamningum. Það er miður hvað umræðan hefur takmarkast við afleiðingar brýnna viðhaldsverkefna, viðhalds vegna rakavandamála og þeirri erfiðu og viðkvæmu stöðu að geta ekki brúað bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla eins hratt og áætlanir gerðu ráð fyrir eins og skýr vilji stendur til.
Samgöngusáttmálinn er tímamótasamningur um skýra framtíðarsýn í fjölbreyttum samgöngumátum fyrir höfuðborgarsvæðið. Vinna við uppfærslu hans er í gangi. Skilaboð síðustu daga eru að endurskoða þurfi samninginn. Ekki er til nægt fjármagn til að gera allt fyrir alla strax. Það þarf að forgangsraða verkefnum og fjármunum. Hvernig er hægt að uppfylla markmið sáttmálans um að þjóna öllum ferðamátum en á sama tíma forgangsraða takmörkuðum fjármunum. Í þágu hverra á að forgangsraða?
