Flestir foreldrar í Reykjavík þekkja frístundarvefinn, vefur sem hefur geymt upplýsingar um námskeið til íþrótta og tómstunda í Reykjavík í mörg ár. Margir foreldrar kannast við að sitja framan við skjáinn til að skrá ungana sína í spennandi sumarnámskeið, valið hverfi, tímabil og skannað fjölbreytt framboð á námskeiðum og afþreyingu. Vefurinn var komin til ára sinna og brýnt að uppfæra hann og aðlaga að nýjum stöðlum. Sá annmarki hefur verið á vefnum að hann hefur einungis haldið utan um þjónustuframboð fyrir börn og ungmenni en ekki önnur aldursskeið eins og eldra fólk. Úr því þurfti að bæta.
Breytt samfélagsgerð kallar á nýja hugsun í íbúðauppbyggingu og þjónustu fyrir þau sem bera gæfu til að eldast. Samkvæmt mannfjöldaspám Hagstofu Íslands stendur þjóðin frammi fyrir sömu áskorunum og nágrannaþjóðir okkar. Hlutfall eldra fólks mun aukast jafnt og þétt næstu áratugina. Þannig mun mín kynslóð, næsta kynslóðin á undan mér og þær sem á eftir koma, lifa lengur, vera fjölmennari og gera meiri kröfur til samfélagsins hvað varðar þjónustu, lífsgæði og heilbrigði. Brýn þörf er fyrir öruggt húsnæði á hagkvæmu verði í borgarsamfélögum samtímans og Reykjavík er engin undantekning frá öðrum borgum. Á sama tíma þarf að gæta að því að nýta landið vel.
Í froststillu síðustu vikna hefur Reykjavíkurborg og umhverfi hennar skartað sínu allra fegursta. Margbreytileg litasamsetning miðsvetrarbirtunnar dregur mörg út undir bert loft til að njóta súrefnis, hreyfingar og næra sálina í skammdeginu. Útilífsborgin Reykjavík er sannarlega fjölbreytt en markmið og hlutverk hennar er meðal annars að stuðla að aukinni þátttöku borgarbúa í almennri útiveru, hreyfingu og stuðla þannig að bættri lýðheilsu.
Þörf einstaklingsins til að tilheyra er mikil; tilheyra fjölskyldu, tilheyra vinahópi, tilheyra skólanum sínum, tilheyra íþróttafélagi - tilheyra samfélagi, öðlast um leið tilgang og mynda félagsleg tengsl.
Í vikunni var uppfærður sögulegur samgöngusáttmáli samþykktur í borgarstjórn Reykjavíkur. Svo ánægjulega vill til að þetta var gert í evrópsku samgönguvikunni. Samgöngusáttmáli sveitarstjórnanna á höfuðborgarsvæðinu og ríkisvaldsins er sannkallað tímamótasamkomulag. Samkomulagið er stærra en Reykjavík, stærra en höfuðborgarsvæðið, stærra en stjórnmálaflokkar því það er samkomulag um sameiginlega framtíðarsýn og framkvæmdaáætlun.
Sterkar almenningssamgöngur fyrir fjölmennsta íbúahorn landsins ætti að vera í algjörum forgangi hjá pólitíkinni - svæði sem 82% landsmanna býr á og langflestir ferðamenn snerta fyrst. Strætó bs. þjónustar höfuðborgarsvæðið og landsbyggðarstrætó, sem Vegagerðin ber ábyrgð á og rekur, sinnir á tengingu út land, eins og til Keflavíkur, Akureyrar og austur fyrir fjall.
