Um mig
Hver er Sara Björg Sigurðardóttir?
Ég heiti Sara Björg, fædd í Reykjavík 1977, sleit barnsskónum í Kópavogi, í Hrísey og í uppsveitum Borgarfjarðar. Æfði sund með sundfélaginu Ægi í tæpan áratug, keppti með landsliðinu, þjálfaði sundfólk á ýmsum aldri og er með ungbarnasundsréttindi. Hljóp af mér ungdóminn á félagsfræðibraut Menntaskólans við Sund.
Foreldrar mínir eru Hafdís Hrönn Ottósdóttir og Sigurður Hjarðar Leópoldsson, sem búa núna í Hjöllunum í Kópavogi. Mamma er ættuð úr Hrísey og pabbi úr Borgarfirðinum. Þau eru bæði komin á gyllta aldurinn og hafa lokið sinni starfsævi. Mamma vann lengst af í stjórnsýslu heilbrigðis- og velferðarmála en pabbi í orku- og nýsköpunargeiranum. Ég á yngri systur sem er læknir og býr í Stokkhólmi með manninum sínum og tveimur ungum börnum.
Ég hef alltaf haft áhuga á samfélögum, fólkinu sem þar býr, kerfunum sem þau byggjast á og þjónustunni sem þar er innt af hendi sérstaklega fyrir börn og ungmenni. Þetta leiddi mig inn á veg stjórnmálafræði, seinna meir stjórnsýslufræða. Áhugasviðin voru stjórnsýsla sveitarfélaga, þjónusta og verkaskipting.
Ég hef búið í höfuðborginni í tuttugu ár ‒ en með viðkomu í Suður-Kaliforníu, á Spáni og í Danmörku. Síðustu fjórtán árin hef verið búsett í Breiðholti með fjölskyldunni.
Maðurinn minn er einmitt úr Breiðholtinu, heitir Guðmundur Axel Hansen, er fjármálaverkfræðingur og starfar í stjórnsýslunni. Við eigum þrjú börn á aldrinum 10 til 17 ára, stúlku og tvo drengi, Sigurð Arnar, Bjarndísi Olgu og Leópold Axel.
Starfsreynslan er fjölbreytt ‒ ég hef unnið í fiski, við kennslu, í sölu- og þjónustustörfum en lengst af sem sérfræðingur hjá ríki, stjórnsýslu héraðsdómstóla og sýslumanni.
Ég sæki andagift í vatnið, og í garðinn minn, og finnst ekkert betra en að hjóla með vindinn í fangið.
