Við sem þjóð erum stolt af landinu okkar, stolt af landsins gæðum; vatninu sem við drekkum ferskt úr ám og lækjum, ósnortinni náttúru - sem er úfin og ófyrirséð og blessuðu loftinu sem við öndum að okkur.
Elliðaárnar hafa stundum verið kallaðar Perla Reykjavíkur enda einstakt að laxaveiðiá renni um höfuðborg. Þar sem raforkuvinnslunni hefur verið hætt eru markvissar aðgerðir til að endurheimta fyrra lífríki í ánum þegar farnar að skila sér.
Íbúalýðræði og íbúaráðin í Reykjavík hafa verið til umræðu síðustu misserin eftir íbúaráðsfund Laugardals fyrir stuttu en þar átti sér stað einstakt atvik sem búið er að biðjast afsökunar á. Atvik sem á engan hátt endurspegla mikilvægt starf íbúaráðanna í hverfum borgarinnar. Umræðan var hörð í kjölfarið og stór og niðrandi orð í garð íbúaráðanna látin falla. Ráðin væru gagnlausustu ráð borgarinnar, þau væru sýndarsamráð, kostnaður væri hár og hafa fyrrverandi ráðsmenn jafnvel gengið svo langt að tala um afplánun með því að taka sæti í íbúaráði í sínu hverfi.
Í janúar sl. tóku í gildi lög um hringrásarhagkerfi og þannig varð skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka undir húsvegg. Um er að ræða umfangsmikið verkefni bæði fyrir Reykjavíkurborg en líka fyrir okkur neytendur að breyta venjum okkar og vinnulagi. Um er ræða viðamikið umhverfismál en með réttri flokkun er ekki bara hægt að minnka sóun heldur líka að endurnýta verðmæti í stað þess að henda þeim og á sama tíma skapa ný verðmæti.
Reykjavíkurborg stendur á tímamótum. Síðasta áratug og þann næsta verða mestu breytingar á borginni í hálfa öld. Framtíðarborgin farin að taka á sig mynd á sínu mesta uppbyggingarskeiði. Það er viðeigandi mitt í HönnunarMars að hafa hugrekki til að kasta fram djörfum hugmyndum um nýja nálgun í búsetuformi. Kynslóðakjarna þar sem kynslóðir búa saman, nýta sömu lífsgæðin sem hvort tveggja ýtir undir fjölbreytt mannlíf í þéttri og grænni borg. Borgin okkar er að breytast, ný hverfi verða til, byggðin tekur á sig nýja mynd og tækifæri til að móta borgarsamfélag framtíðar er núna. Aðalskipulag Reykjavíkur, leiðarljósið okkar, tekur utan um byggðina, faðmar og fangar hlýlega inn í mótandi borgarsamfélag.
Dreifing byggðar eykur umferð, veikir almenningsamgöngur og eykur tafatíma í umferðinni. Og síðast en ekki síst vinnur dreifing byggðar gegn árangri í loftslagsmálum en við stefnum einmitt á kolefnishlutlausa borg árið 2040. Þess vegna er algert forgangsatriði fyrir okkur sem búum í Austurborginni að ef áformum um uppbyggingu Borgarlínu verði flýtt, þá verði það á þeim svæðum þar sem fyrir býr fólk, ekki eingöngu á stöðum þar sem ný byggð rís.
Leit