Eftir mikla samvinnu, samtal og vinnu margra aðila, íbúa, Framara, starfsmanna borgarinnar og fagfólks, að ógleymdri þolinmæði íbúa í hverfinu, má sjá afrakstur margra ára vinnu í nýju hverfishjarta.

Ekkert sveitarfélag á landinu hefur lagt jafn mikla áherslu á að skapa umgjörð fyrir uppbyggingu óhagnaðardrifis húsnæðis fyrir jafn fjölbreytta hópa eins og Reykjavík. Meirihlutinn í borginni hefur leitt þær breytingar á meðan sveitarfélögin í Kraganum hafa varla lyft litla fingri í húsnæðismálum. Á liðnum árum hafa verið byggðar 2.500 - 3.000 leigu- og búseturéttaríbúðir, 600 íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur og leigueiningum Félagsbústaða hefur verið fjölgað um 600.  

Sóknarfæri austan Elliðaáa fyrir hjólaborgina Reykjavík

Metnaðarfull hjólreiðaáætlun var samþykkt í sumar fyrir árin 2021–2025 með rúmlega fimm milljarða fjárfestingu í hjólaborginni Reykjavík. Hjólainnviðir er samheiti yfir aðbúnað og umgjörð fyrir þá sem stunda samgönguhjólreiðar. Þættir sem snúa að öryggi vegfarenda, eins og aðgreining hjólastíga frá gangbrautum, trygg lýsing, tíð þjónusta á stígum yfir vetrartímann og aðstaða fyrir hjólreiðafólk á borð við yfirbyggð hjólaskýli, fótahvílu við þveranir gatnamóta og tryggar festingar sem hægt er læsa hjólum á öruggan hátt. Uppbygging innviða síðasta áratugar hefur skilað sér í aukinni hlutdeild hjólreiða en í dag liggja 32 km af hjólastígum innan borgarmarkanna.

Jöfnunarsjóður sniðgengur börnin í borginni þrátt  fyrir 83 milljarða framlag borgarbúa á næsta kjörtímabili

Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið í landinu þar sem skólabörn og börn af erlendum uppruna fá núll krónur í framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þetta er bláköld staðreynd þrátt fyrir að reykvískir launþegar borgi lang mest í sjóðinn, bæði með útsvari sínu og tekjuskatti en í sjóðinn rennur hluti útsvarstekna sveitarfélaga auk mótframlags úr ríkissjóði. Í greinagerð með fjárhagsáætlun borgarinnar 2021 kemur fram að Reykjavíkurborg mun greiða rúmlega 50 milljarða í Jöfnunarsjóð Sveitarfélaga á næsta kjörtímabili. Á sama tímabili fær borgin tæpa 27 milljarða úr sjóðnum en langstærsti hluti er framlag vegna sérþarfa fatlaðra nemenda. 

228 hraða­lækkandi til­lögur frá í­búum á kjör­tíma­bilinu

Í síðustu viku komst til framkvæmda fyrsti áfangi nýrrar hámarkshraðaáætlunar sem samþykkt var síðastliðið vor. Hafa vaskir starfsmenn borgarinnar verið að endurmerkja götur og skipta út skiltum vegna lækkunar hraða víðsvegar um borgina en nýjar merkingar taka gildi jafnóðum og þær eru settar upp. Markmiðið er að stuðla að bættu umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda innan hverfisins en rannsóknir sýna að fylgni er á milli hraða og slysatíðni. Forgangsatriði fyrir meira öryggi vegfarenda er að draga úr hraða til að auka öryggi gangandi og hjólandi. Lögð hefur verið áhersla á götur við leiðir barna til og frá skóla eða frístunda samhliða við götur þar sem er mikill fjöldi gangandi vegfarenda á leið um.

Gerum enn betur fyrir börnin í Breið­holti

Nýting Frístundakortsins, sem er styrkjakerfi borgarinnar í frístundastarfi fyrir 6 til 18 ára börn og unglinga með lögheimili í Reykjavík, hefur verið línulega vaxandi árin 2015 til 2019 í flestum hverfum borgarinnar.

Leit