Samfylkingin hefur sterka og skýra framtíðarsýn á þróun hverfa borgarinnar. Við viljum forgangsraða fjármagni í þau hverfi sem fyrir eru og nýta þá innviði sem búið er að fjárfesta í eins og dæmin sanna með uppbyggingu íþróttamannvirkja við Egilshöll og þéttara neti stíga.
Skipulagt íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni er ein besta forvörn sem til er. Þetta vita foreldrar og aðstandendur barna enda ekkert eins dýrmætt þegar ungviðið finnur sína fjöl í skipulögðu frístundastarfi.
Sara Björg skipar 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Á kjörtímabilinu sem er að líða hefur Sara verið varaborgarfulltrúi og sinnt hlutverki formanns íbúaráðs Breiðholts. Ræðu Söru er finna hér fyrir neðan.
Reykjavík hefur verið leiðandi varðandi aðgerðir til að bæta starfsumhverfi í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi og varið til þess yfir fimm milljörðum króna. Samfylkingin mun áfram leggja áherslu á bætt starfsumhverfi varðandi laun, starfskjör, húsnæði og annan aðbúnað enda er það forsenda þess að skólarnir í borginni séu eftirsóknarvert umhverfi fyrir kennara, starfsfólk almennt og börnin að sjálfsögðu.
Á liðnu kjörtímabili hefur íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgað um 16.000. Þar af Reykvíkingum um 10.000.
Á liðnu kjörtímabili hefur íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgað um 16.000. Þar af Reykvíkingum um 10.000.
Leit