Breiðholtið mun blómstra í sumar en styrkir Sumarborgarinnar 2021 munu sjá til þess að fjölbreyttir viðburðir og uppákomur verða að veruleika víðsvegar um hverfið.
Íbúaráðið hefur úthlutað tæpum 4,5 milljón krónur í styrki til Sumarborgarinnar 2021 en Breiðhyltingar og aðrir borgarbúar eiga von á fjölbreyttum 17. júní viðburðum í bæði Efra- og Neðra-Breiðholti eins og í fyrra, kvöldtónleikum á Bakkatúni, Pop-up jóga og leikvöllum víðsvegar um hverfið, fjölskyldu- og sumarhátið, Bretta partý með grilli, Sirkussýningu sem sýnd verður víða um hverfið, tónlistarspuna fyrir hipp hopp og rapp fjölskyldur og vinnustofu í blöðrudýragerð.

Íbúar Breiðholts eru lánsamir að búa í öðru hverfi í borginni, á eftir Árbænum, til fá staðbundið skipulag fyrir nærsamfélag sitt, svokallað hverfisskipulag. Markmið hverfisskipulagsins er tvíþætt. Annarsvegar er það hugsað til að einfalda líf borgabúans og hinsvegar til að endurskipuleggja gróin hverfi með komandi kynslóðir í huga.

