Meiri og betri Mjódd með öflugri flugrútu

Meiri og betri Mjódd með öflugri flugrútu

Mjóddin er fjölmennasta skiptistöð á höfuðborgarsvæðinu, fjölmennari en Hamraborg, fjölmennari en Hlemmur og fjölmennari en Lækjargata. Hún sinnir ekki aðeins almannasamgöngum á höfuðborgarsvæðinu heldur er líka byggðalína út á land.

Lífæð landsbyggðar

Leið 51 og 52 fara austur yfir fjall, og önnur þeirra alla leið til Hafnar, en leið 57 ekur um Vesturland á leið sinni til Akureyrar. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hefur sú ákvörðun verið tekin að leið 55, til Keflavíkur og Leifsstöðvar, er látin sniðganga leiðakerfið í gegnum Mjódd og öllum ferðamönnum stefnt alla leið vestur á BSÍ, líka þeim sem eru á leið beint út á land eða í Austurborgina. Þeir farþegar þurfa þess vegna að leggja á sig óþarfa ferðalag eftir umferðarþyngstu götum höfuðborgarsvæðisins, ekki bara einu sinni, heldur tvisvar.

Engin þjónusta fyrir Austurborgina

Íbúar í hverfunum austan Elliðaáa, fjölmennustu hverfum borgarinnar, Breiðholti, Árbæ, Grafarvogi, Úlfarsárdal og Norðlingaholti er ásamt stórum hluta Kópavogsbúa gert ómögulegt að nýta sér leið 55, þar sem hún stoppar ekkert í bænum austan Elliðaáa. Þessum Reykvíkingum er öllum beint upp í einkabíl, leigubíl eða flugrútu, sem ekki er frekar en leið 55 með biðstöðvar í Austurborginni. Þeim og því ferðafólki sem vill taka leið 55 er gert ókleift að komast með almannasamgöngum úr Austurborginni til Keflavíkur.

Tvö einkafyrirtæki sérhæfa sig í tengingu milli borgarinnar og flugvallarins. Annað fyrirtækið stoppar í Garðabæ og Hafnarfirði, hitt stoppar bara í Hamraborg. Hvorugt hefur séð sér hag sinn í því að bjóða upp á Mjódd sem valkost eða þjónusta Austurborgina. Það er reyndar umhugsunarvert að einkaframtakið sjái sér ekki hag sinn í því að þjónusta fjölmennustu borgarhlutana.

Íbúum búsettum í Austurborginni er mismunað eftir búsetu. Það er óþolandi, að minnsta kosti fyrir jafnaðarmenn, og úr þessu er brýnt að bæta.

Mjódd-Keflavík / Keflavík-Mjódd

Lausnin felst í því að skipta leið 55 í tvennt, A og B. Báðar koma þá frá Keflavík en önnur þræðir eystri borgarhlutann og kemur við í Mjódd. Þá yrði til valkostur fyrir íbúa og ferðamenn frá Leifsstöð sem annaðhvort eru á leið til Akureyrar eða austur fyrir fjall. Búa til nýja tengingu í net almannasamganga frá flugvelli til Mjóddar! Mjóddin gæti orðið lykill að sjálfbærri ferðaþjónustu, og þetta mundi fækka bílum á Reykjanesbraut þar sem þriðji hver farkostur er bílaleigubíll. Drögum úr umferð á Reykjanesbraut og bjóðum upp á strætó 55B í Breiðholt!

Þjónusta, atvinna og iðandi mannlíf

Með því að leið 55 Breiðholt flytur íbúa í Austurborginni til og frá Leifsstöð skapast gullið tækifæri fyrir bæði atvinnulíf og þjónustu að eflast og dafna í Mjódd. Ferðafólk leitar að afþreyingu, margir stunda sjálfbæra ferðamennsku, vilja nota almannasamgöngur eða aðra vistvæn ferðamáta. Þessi hópur er upp til hópa „úrbanistar“. Vilja gott kaffi og krossant, sækja í náttúru Elliðaárdals eða dagsferðir út á land og halda í miðbæinn eftir fjölbreytni með strætó. Margar flugur slegnar í einu höggi: Loftslagið, byggðamál, atvinnumál og samgöngumál Austurborgarinnar og sérstaklega Breiðholtsins. Myljandi sóknarfæri fyrir meiri Mjódd og betri Mjódd, því að með ferðafólki kemur aukið mannlíf, sem aftur skapar sterkari rekstrargrundvöll fyrir fjölbreytta þjónustu og atvinnulíf.

Forgangsröðum í þágu íbúa og umhverfis

Það er skrýtin forgangsröðun að íbúar í Austurborginni og ferðamenn sem vilja sækja í þau hverfi eða fara beint út á land séu þvingaðir til að velja einkabíl eða bílaleigubíl með tilheyrandi kostnaði og mengun. Dýrmætur tími fer í að halda inn í miðborgina og tengjast svo almannasamgöngum í Mjódd til að komast út á land. Það er einkennileg pólitík, kolröng forgangsröðun á almannafé og ekki í anda loftslagsmarkmiða.

Ég ætla að beita mér fyrir því að fá betri þjónustu i almannasamgöngum milli Leifsstöðvar og Mjóddar ‒ til að styrkja atvinnulíf, mannlíf og þjónustu í Mjódd og Breiðholtinu í heild, en líka til að draga úr umferð og auka bæði lífsgæði og loftgæði Reykvíkinga austan Elliðaáa.

Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, býr í Breiðholti og óskar eftir 3. sæti í flokksvali jafnaðarmanna 24. janúar.

Leit