Í borginni eru margir staðir til að næra sál og líkama. Mörgum finnst gott að ganga, finna lyktina af náttúrunni og njóta útsýnis.
Greinin birtist í maí útgáfu Grafarholtsblaðsins
Í borginni eru margir staðir til að næra sál og líkama. Mörgum finnst gott að ganga, finna lyktina af náttúrunni og njóta útsýnis. Öðrum finnst skemmtilegra að hjóla, vera í síbreytilegu umhverfi innan borgarmarkanna, hjóla meðfram sjónum með vindinn í fangið, upplifa sólsetur með sjávarlykt eða horfa á borgina vakna í hversdagsleikann í upphafi vinnuviku. Á síðustu tíu árum hefur orðið umbreyting á ferðavenjum borgarbúa eftir mikla uppbyggingu á innviðum hjólastíga og með tilkomu rafhjóla. Á síðasta kjörtímabili var tekin pólitísk ákvörðun í ráðhúsinu, undir forystu Samfylkingar, að forgangsraða fjármunum í hjólreiðainnviði fyrir fjölbreytta vistvæna ferðamáta, fyrst með hjólreiðaáætlun 2015-2020 og svo var samþykkt ný hjólreiðaáætlun sem gildir fyrir árin 2021-2025.
Tröppu þrek upp Svarthöfða
Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal eru mjög heppnir með stígakerfið í jaðri byggðar við upphaf Austurheiðar sem tengir þá við Grafarvog bæði að sunnan og norðan. Þaðan er stutt í frábæra strandstíga meðfram sjónum en núna er geggjaður strandstígur komin fyrir Gufuneshöfða er án vafa einn fallegasti stígur borgarinnar. Aðgreindur stígur gangandi og hjólandi var byggður upp Svarthöfða og tekinn í notkun í lok síðasta árs, þannig geta vaskir tekið gott tröppuþrek eða hjólaklifur upp Svarthöfða og notið útsýnis yfir borgina.
Útsýnispallur á toppi Úlfarsfells
Útsýnispallur á Stórahnjúki á toppi Úlfarsfells í Mosfellsbæ er vinsæll áfangastaður fyrir göngu-, hjóla- og hlaupahópa en Neyðarlínan, RÚV og Vodafone stóðu saman að byggingu pallsins en fjórum fræðsluskiltum hefur verið komið fyrir á honum. Á þeim má sjá öll þau örnefni sem blasa við. Á pallinum er einnig afdrep þar sem fólk getur sest niður. Útsýnið af Úlfarsfelli yfir höfuðborgarsvæðið og Faxaflóa er stórbrotið en fjölmargar leiðir eru upp á 296 metra hátt fellið.
Austurheiðar - Hin nýja Heiðmörk Reykvíkinga
Við í Samfylkingunni viljum efla Austurheiðar með markvissari hætti sem fjölbreytt og aðgengilegt útivistarsvæði fyrir borgarbúa á öllum aldri með ólík áhugamál sem gætu notið útivistar og náttúru án þess að ganga á gjafir náttúrunnar. Við sjáum fyrir okkar hópa eins og hestafólk, fjalla hjólreiðamenn, göngu og utanvegahlaup jafnvel vetraríþróttir eins og gönguskíði. Mikilvægt er að ákvarða og skilgreina legu helstu vegtenginga og göngu-, hjóla og reiðleiða um svæðið, styrkja tengingu byggðar við útivistarsvæði og aðliggjandi svæða eins og Rauðavatn þannig að hægt verði að stunda fjölbreytta útivist allt árið um kring.
Fjárfesting í sterkari og sjálfbærari hverfum
Samfylkingin hefur sterka og skýra framtíðarsýn á þróun hverfa borgarinnar. Við viljum forgangsraða fjármagni í þau hverfi sem fyrir eru og nýta þá innviði sem búið er að fjárfesta í með áframhaldandi uppbyggingu í stað þess að þenja byggðina út strax með nýrri uppbyggingu. Við viljum fjárfesta þar sem fólk býr en ekki þar sem enginn býr.
Gerum Austurheiðar að nýju Heiðmörk Reykvíkinga og setjum X við S þann 14. maí 2022.
