Þátttaka skipulögðu starfi félagsmiðstöðva, íþrótta- og frístundafélaga er einn af verndandi þáttum gegn áhættuhegðun barna, hefur mikið forvarnargildi og er ein besta leið til samfélagslegrar inngildingar í nærsamfélagið. Ef börnunum líður illa, fá ekki tækifæri til að vaxa og dafna er hætta á að þau nái ekki tilheyra í skólanum sínum, einangrast félagslega og verða jaðarsett í hverfinu sínu með afleiðingum sem birtast í hegðanavanda, beitingu ofbeldis jafnvel vímuefnaneyslu.
Félagsmiðstöðvarstarf á heimsmælikvarða
Tuttugu félagsmiðstöðvar eru í hverfum borgarinnar. Öruggir staðir fyrir krakka í hverfinu þar sem boðið er upp á uppbyggilegt félagsstarf fyrir börn og ungmenni á aldri 10–16 ára. Þær eru opnar eftir að skólatíma lýkur og á kvöldin og er opnunartími auglýstur í hverri félagsmiðstöð. Á sumrin er boðið upp á fjölbreytt starf í smiðjum og sumarnámskeið fyrir yngri hópinn en hópastarf og opið hús fyrir 13–16 ára. Hvar halda eldri ungmenni sig? Hvert fara þau þegar þau hætta í skipulögðu íþróttastarfi? Hvar hanga ungmenni á aldrinum 16- 20 ára?
Tengjumst betur eftir skóla
Enginn staður heldur utan um ungt fólk á framhaldsskóla aldri innan hverfa borgarinnar. Þar erum við ljósárum á eftir þeim löndum sem við berum okkur saman við. Þar eru sóknafæri. Þar þarf að gera betur. Þessi hópur þarf að eiga öruggt skjól í heilbrigðu umhverfi. Ungmennahús, félagsmiðstöð fyrir ungmenni á aldrinum 16-20 ára þar sem heilbrigð unglingamenning fær að blómstra, staður til að hanga, staður til skapa, staður til að kynnast nýjum krökkum. Staður fyrir öll að vaxa og dafna undir verndarvæng fagfólks í frístundastarfi. Með því að skapa umgjörð fyrir ungt fólk, stað til styðja og styrkja til að þau nái tilheyra. Með samvinnu félagsmiðstöðva við ungmennahús skapast samfella sérstaklega þau sem hafa flosnað upp úr formlegu námi eða skipulögðu tómstundastarfi.
Íslenska forvarnarmódelið þarf að uppfæra
Íslenska æskulýðsrannsóknin sýnir að á 30 daga tímabili hefur 58% ungmenna í framhaldsskóla 18 ára og eldri drukkið áfengi, hlutfall yngri en 18 ára er 35%, fleiri stelpur en strákar. Þegar sami hópur var spurður um hvort þau hefðu orðið „blind full“ þá hafa 31% ungmenna 18 ára og eldri orðið blindfull á sama tímabili og hlutfall yngri en 18 ára er 25%. Þar er hlutfall kynja áþekkt eða milli 31-32%.
Finnst okkur í lagi að þriðjungur barna 18 eldri drekki sig blindfull og fimmtungur undir 18 ára aldri geri það líka? Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi fer minnkandi í eldri bekkjum grunnskóla, fellur úr 86% í 6. bekk niður í 67% í 10. bekk en það sem alvarlegra er að hún heldur áfram að dragast saman þegar komið er upp í framhaldsskóla. Einungis 11% ungmenna í framhaldsskóla 18 ára og eldri stundar líkamlega hreyfingu á hverjum degi, 16% yngri en 18 ára.
Árið 1997 tók saman hópur fólks sem starfaði með börnum og ungmennum á vettvangi í bland við fólk úr félagsvísindum og stefnumótunaraðila eru leituðust við að setja fram stefnu og starf, byggt á rannsóknum, sem gæti snúið vondri unglingamenningu við. Markmiðið var að kortleggja félagslega þætti sem hafa áhrif á vímuefnanotkun ungmenna og reyna finna aðgerðir sem hægt væri að beita í forvarnarstarfi. Útkoman var Íslenska forvarnarmódelið, sem byggir á samvinnu margra aðila í lífi barna og ungmenna úr nærumhverfi þeirra. Síðan eru liðin mörg ár. Það þarf að uppfæra forvarnarmódelið, endurhugsa út frá breyttri samfélagsgerð, samfélagsmiðlum, styttingu framhaldsskólans og skorti á stefnu fyrir heilbrigða unglingamenningu í öruggu umhverfi fagfólks.
Ungmennahús - öruggur staður fyrir ungt fólk
Ungmennahús kemur sterkt inn bæði sem forvörn en líka sem athvarf fyrir þau börn sem þurfa á stuðningi og endurræsingu að halda. Öruggur staður sem gæti þjónustað breiðan hóp ungs fólks, alla daga vikunnar - líka um helgar. Staður sem hefur það markmiði að ná til sem flestra í hverfinu og skapa vettvang til samstarfs og jákvæðra tengsla. Samstarf við máttarstólpa í nærsamfélaginu sem tengjast börnum, ungmennum og foreldrum eins og skóla, félagsmiðstöðva, íþrótta- og frístundafélaga, sjálfboðaliðahópa eins og björgunarsveita og vettvang skapandi greina og nýsköpunar.
Setjum ungt fólk í fyrsta sæti
Ungt fólk er framtíðin. Ég vil beita mér fyrir því að við sem samfélag hlúum lengur að ungu fólki, sköpum þeim öruggari stað til að þróa heilbrigða unglingamenningui undir handleiðslu fagfólks félagsmiðstöðva. Með því að tengjast betur eftir skóla, ná utan um börn í viðkvæmri stöðu, uppræta vanlíðan og þræða betur þriðju stoðina í lífi barna, skipulagt íþrótta- og frístundastarf við hinar tvær skóla og velferð, náum við markvissari utan um þau og lengur. Við þurfum fjölbreytni, fleiri örugga staði til að dveljast á eftir að formlegum skóla lýkur- ungmennahús yrði til öruggur staður til að vera á þar sem ungt fólk á aldrinum 16+ ára fengi að vaxa og dafna.
Höfundur er varaborgarfulltrúi og sækist eftir 3. sæti í flokksvali Jafnaðarmannaflokks Íslands sem haldið verður 24.janúar næstkomandi.
