Það er mikilvægt verkefni jafnaðarfólks að tryggja enginn sé skilinn útundan þegar aldurinn færist yfir, lykill að góðu velferðarsamfélagi
Mjóddin er fjölmennasta skiptistöð á höfuðborgarsvæðinu, fjölmennari en Hamraborg, fjölmennari en Hlemmur og fjölmennari en Lækjargata. Hún sinnir ekki aðeins almannasamgöngum á höfuðborgarsvæðinu heldur er líka byggðalína út á land.
Þátttaka skipulögðu starfi félagsmiðstöðva, íþrótta- og frístundafélaga er einn af verndandi þáttum gegn áhættuhegðun barna, hefur mikið forvarnargildi og er ein besta leið til samfélagslegrar inngildingar í nærsamfélagið. Ef börnunum líður illa, fá ekki tækifæri til að vaxa og dafna er hætta á að þau nái ekki tilheyra í skólanum sínum, einangrast félagslega og verða jaðarsett í hverfinu sínu með afleiðingum sem birtast í hegðanavanda, beitingu ofbeldis jafnvel vímuefnaneyslu.
Mjóddin er miðja borgarinnar og hjarta Breiðholts. Tækifærið er núna til að endurhugsa, endurskapa og endurgera Mjóddina fyrir framtíðarborgina Reykjavík.
Við vitum að íþrótta- og tómstundastarf er eitt af því sem verndar börn gegn áhættuhegðun, hefur mikið forvarnargildi og er ein besta leið til að tilheyra í nærsamfélaginu ‒ það heitir inngilding. Þátttaka barna í þessu starfi hefur aukist jafnt og þétt, en tölurnar segja líka að börn og ungmenni í öllum hverfum borgarinnar þurfi handleiðslu, og bæði félagslegan og fjárhagslegan stuðning.
Hvaða kona vill detta út af vinnumarkaði, fara í veikindaleyfi og enda starfsævi sína langt undan sínum kynsystrum. Engin. Það vill enginn kona detta út af vinnumarkaði og ekki eiga afturkvæmt þangað aftur.




