Átt þú barnið sem situr eftir?

Átt þú barnið sem situr eftir?

Við vitum að íþrótta- og tómstundastarf er eitt af því sem verndar börn gegn áhættuhegðun, hefur mikið forvarnargildi og er ein besta leið til að tilheyra í nærsamfélaginu ‒ það heitir inngilding. Þátttaka barna í þessu starfi hefur aukist jafnt og þétt, en tölurnar segja líka að börn og ungmenni í öllum hverfum borgarinnar þurfi handleiðslu, og bæði félagslegan og fjárhagslegan stuðning.

Á síðasta ári voru um 18% barna í borginni sem ekki nýttu frístundastyrkinn. Hann nemur 75 þúsund krónum á hvert barn 6 til 18 ára. Þetta er alls um 3.860 börn. Ætli það séu börnin úr vel efnuðum fjölskyldum, sem ekki þurfa endilega á þessum 75 þúsund krónum að halda?

Nei. Þetta eru fyrst og fremst börn úr viðkvæmum fjölskyldum, oft peninga litlum og jaðarsettum. Þau þarf að finna, styðja og valdefla. Ekkert okkar vill að félagslegar eða efnahagslegar ástæður komi í veg fyrir þátttöku þeirra í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Ekkert barn á að sitja eftir.

Málið er 75 þúsund krónurnar nægja einfaldlega ekki fyrir útgjöldum efnalítilla foreldra við íþróttir og tómstundastarf. Það þarf búninga, skó, fé í ferðalög og mótsgjöld, eða til dæmis til að leigja eða kaupa hljóðfæri, og svo framvegis. Oft verður þrautaráðið að láta þetta eiga sig og sækja ekki um frístundastyrkinn. Eða þá að fólk veit ekki af honum.

Frístundatengill í Breiðholti ‒ góð reynsla

Verkefnið Frístundir í Breiðholti var sett af stað sem tilraunaverkefni til þriggja ára, frá 2020 til 2023. Markmiðið var að auka þátttöku barna í viðkvæmri stöðu, barna af erlendum uppruna, fatlaðra barna og barna sem búa við fátækt. Einn liður í verkefninu var að láta frístundatengil heimsækja alla skóla í hverfinu, ná til grunnstoða í lífi barnsins, skólans, fjölskyldunnarr, og tengja börnin við skipulegt íþrótta- og tómstundastarf.

Þetta skilaði góðum árangri og var fest í sessi árið 2023. Frá árinu 2021 hefur frístundatengillinn í Breiðholti tekið meira en þúsund viðtöl við börn og fjölskyldur þeirra. Með fjárframlagi frá ríkinu í kjölfar Covid-farsóttarinnar, sem nú er búið, reyndu aðrar miðstöðvar að koma til móts við sama hóp barna, en vinnulagið var ekki samræmt. Þörfin reyndist hins vegar sannarlega til staðar í fleiri hverfum en Breiðholti. Þar sátu líka börn eftir. Þau eru verkefnið.

Finnum börnin og styðjum þau

Með því að að stofna teymi frístundatengla sem vinnur þvert á borgarhverfin getum við tekið skipulega fyrir fleiri hverfi en Breiðholtið. Farteymið vinnur út frá faglegu mati og hefur að markmiði að skima fyrir börnum í viðkvæmri stöðu, og styðja þau í að finna sér frístund eftir áhugasviði. Frístundatenglarnir þjónusta barnið og foreldra þess í nærumhverfinu, svo sem í grunnskóla, félagsmiðstöð, frístundaheimili og/eða íþrótta- og tómstundafélagi innan hverfisins. Samhliða er mikilvægt að teymið hafi viðveru í skólanum ‒ til dæmis í bóksafninu ‒ þegar það eru foreldraviðtöl, og aðstoði foreldrana við að skrá börn í íþróttir- og tómstundir.

Styrktarsjóður 

Til að verkefnið nái flugi þarf styrktarsjóð. Slíkur sjóður var stofnaður fyrir verkefnið í Breiðholti, og það starf hefur sannað að þörfin er til staðar. Í gegnum hann hafa 45 börn og ungmenni hafa fengið styrk til að koma til móts við umfram kostnað sem fellur til við skipulagt tómstundastarf. Sjóðurinn er eingöngu hugsaður fyrir börn og ungmenni í viðkvæmri stöðu, í fjölskyldum sem búa við fátækt eða fötlun eða þurfa að njóta félagslegrar inngildingar.

Hvert barn skiptir máli

Það er verkefni jafnaðarmanna að jafna tækifæri allra barna. Eftir að Samfylkingin efndi kosningaloforð um að hækka frístundastyrkinn úr 50 þúsund í 75 þúsund hefur börnum fjölgað í skipulögðu tómstundastarfi, en þátttakan hafði dvínað verulega á farsóttarskeiðinu. Það er gleðilegt. En um leið sést líka sá hópur sem þarf að finna, vinna með og valdefla með stuðningi, bæði félagslegum og fjárhagslegum. Þetta skiptir börnin máli, en eykur líka jöfnuð og samheldni í samfélaginu almennt, og vinnur gegn misrétti og skautun. 

Að stunda skipulagt tómstundastarf á Íslandi er dýrt. Það vita barnafjölskyldur. Enginn vill vera barnið sem situr eftir. Öll börn vilja finna sinn stað, tilheyra, sem eflir sjálfstæði og styrkleika. Það er stóra verkefnið.

 Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Breiðhyltingur og sækist eftir 3. sæti í flokksvali jafnaðarmanna 24. janúar.

Leit