„Mamma, eru loftgæðin á grænu?“galaði 9 ára sonur minn þegar hann var hugsa um hvort hann ætti að ganga eða hjóla í skólann, en hann hafði bæði séð gulu huluna sem legið hefur yfir höfuðborgarsvæðinu síðustu daga og fundið lyktina af henni úti. Síðustu daga hafa loftgæðin verið vond; ekki verið á grænu, heldur meira á gulu, appelsínugulu eða jafnvel rauðu. En hvað er svona hættulegt við gulu huluna - svifryk, þessar smáu agnir sem þyrlast út í andrúmsloftið í kringum okkur? Hverjar eru afleiðingar lélegra loftgæða fyrir heilsu fólks, þá sérstaklega viðkvæma hópa eins og börn, eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma? Hvers vegna telur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin að léleg loftgæði séu eina mestu ógn mannkyns?
