Það er margt frábært við Grafarvog, en skipulag hans hefur líka sína galla. Grafarvogur er dreift hverfi, langar vegalendir eru milli hverfishluta. Stórar umferðaræðar skera hverfið í sundur og mikil fækkun íbúa á vissu aldursbili er staðreynd.Í umræðuna undanfarið hefur vantar inn mikilvægan þátt. Hvað þarf gott hverfi til að þrífast, til að hverfi sé sjálfbært um íbúa þannig að hringrás lífsins innan hverfisins sé eðlileg, að jafnvægi ríki á milli aldurshópa barna, ungs fólks, miðaldra fólks og eldra fólks?
