Samkvæmt tölum frá Reykjavíkurborg nýttu 16.629 börn af alls 20.489 börnum í borginni frístundakortið að einhverju leyti á síðasta ári en meðal nýting kortsins á síðasta ári var 81%. Það þýðir að 19% barna nýttu ekki styrkinn, sem nemur 75 þúsundum króna á hvert barn, 6-18 ára. Hvað veldur? Vilja þau bara ekki taka þátt? Eru þau löt og áhugalaus eða eru aðrar ástæður fyrir því að þau taka ekki þátt? Getur e.t.v. verið að fjárhagslegar og félagslegar ástæður hamli þátttöku þeirra í íþróttum eða öðru skipulögðu tómstundastarfi? Börn og ungmenni sem koma frá tekjulágum heimilum, eiga einstætt foreldri, eru af erlendum uppruna eða búa við fötlun?Það er umhugsunarefni, fyrir öll sem er annt um velferð og líðan barna, að svona stór hópur barna og ungmenna í stærsta sveitarfélagi landsins sitji eftir.
Leit