Á dögunum rauf rafmagnshjólið mitt 5.000 kílómetra múrinn eftir fjögurra ára þjónustu. Elsku Ellan búin að bera mig borgina þvera og endilanga í öllum veðrum, á negldum dekkjum, í logni, í slyddu, í mótvindi, rafmagnslaus og á móti miðnætursól. Vegalengd sem í upphafi virtist vera fjarlægur veruleiki fyrir miðaldra, þriggja barna móður búsetta í Breiðholti varð staðreynd. Á árinu hef ég hjólað tæplega 1.300 kílómetra, til og frá vinnu, í búðina, í sund, í heimsóknir eða á fundi. Vel að setjast á hjólið, skilja bílinn heima, spara akstur þegar tækifæri gefst.Hvað þýðir það að hjóla 1.300 kílómetra á ári eða 5.000 kílómetra á fjórum? Fyrir heimilisbókhaldið, fyrir loftslagið, fyrir heilsuna? Hvað gefa 5.000 kílómetrar á hjóli?
Gangverk hversdagsleikans hefst í vikunni fyrir margar fjölskyldur Í Reykjavík eftir sumarfrí. Háskólarnir byrja í dag, framhaldsskólarnir seinna í vikunni, grunnskólinn í lok hennar, skipulagt íþrótta og tómstundastarf víða farið af stað og starfsfólk mætt til vinnu. Vegagerðin birti frétt nýlega þar sem fjallað var um aukningu dagsumferðar á höfuðborgarsvæðinu milli ára í júlímánuði, sem var 2,1% eða um 3.800 ökutæki. Dagsumferðin hefur aukist mismikið það sem af er ári en mest í janúar en þá var aukningin 7,2% eða um 11.800 ökutæki. Þannig keyrðu tæplega 12 þúsund fleiri bílar um höfuðborgarsvæðið á dag í janúar í ár en á sama tíma í fyrra. Við viljum draga úr umferð, minnka ferðatímann og bæta loftgæðin. Þar koma fjölbreyttir ferðamátar sterkir inn eins og strætó og hjólreiðar.
