Samgöngusáttmálinn er tímamótasamningur um skýra framtíðarsýn í fjölbreyttum samgöngumátum fyrir höfuðborgarsvæðið. Vinna við uppfærslu hans er í gangi. Skilaboð síðustu daga eru að endurskoða þurfi samninginn. Ekki er til nægt fjármagn til að gera allt fyrir alla strax. Það þarf að forgangsraða verkefnum og fjármunum. Hvernig er hægt að uppfylla markmið sáttmálans um að þjóna öllum ferðamátum en á sama tíma forgangsraða takmörkuðum fjármunum. Í þágu hverra á að forgangsraða?
Við sem þjóð erum stolt af landinu okkar, stolt af landsins gæðum; vatninu sem við drekkum ferskt úr ám og lækjum, ósnortinni náttúru - sem er úfin og ófyrirséð og blessuðu loftinu sem við öndum að okkur.
Dreifing byggðar eykur umferð, veikir almenningsamgöngur og eykur tafatíma í umferðinni. Og síðast en ekki síst vinnur dreifing byggðar gegn árangri í loftslagsmálum en við stefnum einmitt á kolefnishlutlausa borg árið 2040. Þess vegna er algert forgangsatriði fyrir okkur sem búum í Austurborginni að ef áformum um uppbyggingu Borgarlínu verði flýtt, þá verði það á þeim svæðum þar sem fyrir býr fólk, ekki eingöngu á stöðum þar sem ný byggð rís.
