Breytt samfélagsgerð kallar á nýja hugsun í íbúðauppbyggingu og þjónustu fyrir þau sem bera gæfu til að eldast. Samkvæmt mannfjöldaspám Hagstofu Íslands stendur þjóðin frammi fyrir sömu áskorunum og nágrannaþjóðir okkar. Hlutfall eldra fólks mun aukast jafnt og þétt næstu áratugina. Þannig mun mín kynslóð, næsta kynslóðin á undan mér og þær sem á eftir koma, lifa lengur, vera fjölmennari og gera meiri kröfur til samfélagsins hvað varðar þjónustu, lífsgæði og heilbrigði. Brýn þörf er fyrir öruggt húsnæði á hagkvæmu verði í borgarsamfélögum samtímans og Reykjavík er engin undantekning frá öðrum borgum. Á sama tíma þarf að gæta að því að nýta landið vel.
Reykjavíkurborg stendur á tímamótum. Síðasta áratug og þann næsta verða mestu breytingar á borginni í hálfa öld. Framtíðarborgin farin að taka á sig mynd á sínu mesta uppbyggingarskeiði. Það er viðeigandi mitt í HönnunarMars að hafa hugrekki til að kasta fram djörfum hugmyndum um nýja nálgun í búsetuformi. Kynslóðakjarna þar sem kynslóðir búa saman, nýta sömu lífsgæðin sem hvort tveggja ýtir undir fjölbreytt mannlíf í þéttri og grænni borg. Borgin okkar er að breytast, ný hverfi verða til, byggðin tekur á sig nýja mynd og tækifæri til að móta borgarsamfélag framtíðar er núna. Aðalskipulag Reykjavíkur, leiðarljósið okkar, tekur utan um byggðina, faðmar og fangar hlýlega inn í mótandi borgarsamfélag.
Leit