Síðustu sjö árin hefur mikil og metnaðarfull umbótavinna verið unnin af hálfu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem og fagaðila innan skólasamfélagsins í borginni með dyggum pólitískum stuðningi meirihlutans í Reykjavík. Þessi mikla og góða vinna hefur hvorki farið hátt né verið slegið upp í fyrirsögnum fjölmiðla en um er að ræða rúmlega 4 milljarða króna fjárfestingu í bættu starfsumhverfi, bættu faglegu skipulagi innan leikskólans og bættri starfsaðstöðu. Það er fyrir utan viðhald og endurbætur mannvirkja, nýjar Ævintýraborgir og launahækkanir sem komið hafa fram í kjarasamningum. Það er miður hvað umræðan hefur takmarkast við afleiðingar brýnna viðhaldsverkefna, viðhalds vegna rakavandamála og þeirri erfiðu og viðkvæmu stöðu að geta ekki brúað bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla eins hratt og áætlanir gerðu ráð fyrir eins og skýr vilji stendur til.
