Í froststillu síðustu vikna hefur Reykjavíkurborg og umhverfi hennar skartað sínu allra fegursta. Margbreytileg litasamsetning miðsvetrarbirtunnar dregur mörg út undir bert loft til að njóta súrefnis, hreyfingar og næra sálina í skammdeginu. Útilífsborgin Reykjavík er sannarlega fjölbreytt en markmið og hlutverk hennar er meðal annars að stuðla að aukinni þátttöku borgarbúa í almennri útiveru, hreyfingu og stuðla þannig að bættri lýðheilsu.
Í borginni eru margir staðir til að næra sál og líkama. Mörgum finnst gott að ganga, finna lyktina af náttúrunni og njóta útsýnis.
