Reykjavíkurborg leiðir stafræna þjónustu við eldra fólk ekki bara á landsvísu heldur líka á Norðurlöndunum og hefur fjárfest tæplega 356 milljónum króna síðustu sex árin ásamt að hafa fengið um 141 milljón króna mótframlag frá ríkinu - samtals fjárfesting upp á hálfan milljarð króna sem varið hefur verið í stafræna þjónustu umbreytingu hjá velferðarsviði. Utan landsteinanna hefur verið tekið eftir hvað Reykjavíkurborg er þjónustumiðuð en Velferðamiðstöð Norðurlandanna (s. Nordens Välfärdscenter) sem heldur utan um nýsköpun í þjónustu er tengist velferð og kallast í daglegu máli velferðartækni, tilgreinir Reykjavíkurborg í sinni samantekt Norðurlandaþjóðanna sem leiðandi afl á Norðurlöndunum en ekki Ísland.
Breytt samfélagsgerð, ólíkar kynslóðir og tækniþróun kalla á nýja hugsun í þjónustu við okkur sem erum að eldast - hresst eldra fólk, eldra fólk þar sem færni hefur minnkað og þau sem glíma við heilsubrest og þurfa á stuðningi að halda við daglegt líf. Samkvæmt mannfjöldaspám Hagstofu Íslands stendur þjóðin frammi fyrir sömu áskorunum og nágrannaþjóðir okkar. Árið 2020 var hlutfall fólks yfir 65 ára 14%, árið 2038 er áætlað að það hlutfall verði yfir 20% mannfjöldans og árið 2064 yfir 25%. Þannig mun mín kynslóð, næsta kynslóðin á undan mér og þær sem á eftir koma, lifa lengur, vera fjölmennari og gera meiri kröfur á samfélagið hvað varðar þjónustu, lífsgæði og heilbrigði.
