Íbúalýðræði og íbúaráðin í Reykjavík hafa verið til umræðu síðustu misserin eftir íbúaráðsfund Laugardals fyrir stuttu en þar átti sér stað einstakt atvik sem búið er að biðjast afsökunar á. Atvik sem á engan hátt endurspegla mikilvægt starf íbúaráðanna í hverfum borgarinnar. Umræðan var hörð í kjölfarið og stór og niðrandi orð í garð íbúaráðanna látin falla. Ráðin væru gagnlausustu ráð borgarinnar, þau væru sýndarsamráð, kostnaður væri hár og hafa fyrrverandi ráðsmenn jafnvel gengið svo langt að tala um afplánun með því að taka sæti í íbúaráði í sínu hverfi.
Leit